chlaugavegurhero5-1
Svör við algengum spurningum

Hérna eru svör við algengustu spurningunum sem við fáum reglulega. Vonandi er svar við þinni spurningu hér.

Þarftu hjálp?

Vonandi getum við svarað þér.

Hvenær er innritun og útritun?

Innritun á öll okkar hótel hefst kl. 14:00 og útritun er kl. 10:00.

Er hægt að innrita sig snemma - fyrr en á venjulegum innritunartíma?

Já, það er hægt að innrita sig fyrr en kl. 14:00 svo lengi sem við búum svo vel að því að eiga laust herbergi. Snemmbúinn innritun kostar 40 EUR á herbergi. Hafðu samband við okkur á bokanir@centerhotels.is til að fá upplýsingar eða til að bóka snemmbúna innritun.

Er hægt að útrita sig seinna en á auglýstum útritunartíma?

Já, það er hægt að dvelja lengur hjá okkur en til kl. 10:00. Síðbúin útritun er í boði ef við eigum laust herbergi. Hafðu samband við móttökuna á hótelinu þínu til að fá upplýsingar eða til að bóka síðbúna útritun.

Eru bílastæði við hótelin?

Öll hótelin okkar eru staðsett í miðborg Reykjavíkur og eru því í grennd við nokkur almennings bílastæði og bílastæðahús. Við búum svo vel að því að hafa nokkur bílastæði við Center Hotels Arnarhvol, Center Hotels Laugaveg og Miðgarð by Center Hotels sem gestir okkar geta nýtt sér án endurgjalds en það er ekki er hægt að panta þau eða taka þau frá heldur er það fyrstu kemur, fyrstur fær reglan sem gildir. Hafðu samband við móttökuna okkar við komu fyrir frekari upplýsingar og til að næla þér í bílastæðamiða fyrir bílastæðin okkar.

Hvað er innifalið í herberginu?

Útlitið á herbergjunum á hótelunum okkar eru mismunandi eftir stíl hvers og eins hótels en þau eiga það öll sameiginlegt að vera innréttuð í huggulegum, skandinavískum stíl. Í herbergjum er að finna míníbar, flatská, ásamt fríu interneti, síma, hárblásara, straujárni, strauborði, kaffi og te. Herbergin eru ýmist með sturtu eða baðkari.

Hver er munurinn á herbergjatýpunum sem eru í boði?

Herbergjatýpurnar á hótelunum okkar eru mismunandi eftir því á hvaða hóteli þú dvelur. Hægt er að fá nánari upplýsingar um hverja og eina herbergjatýpu á hótelunum og hvað felst í hverri týpu á viðkomandi hótelsíðu. Sjá hér: centerhotels.com/is/hotels-reykjavik

Er hægt að fá uppfærslu upp í betra herbergi?

Við búum svo vel að því að hafa gott úrval af herbergjatýpum og getum því oft boðið upp á uppfærslu svo lengi sem við eigum laus herbergi. Sjá nánari upplýsingar um herbergjatýpurnar okkar á hverju hóteli fyrir sig á viðkomandi hótelsíðu: centerhotels.com/is/hotels-reykjavik. Uppfærsla upp í betra herbergi kostar aukalega frá 25 evrur á nóttu.

Er veitingastaður á hótelunum?

Já, við erum svo heppin að vera með veitingastaði á hótelunum okkar. Þeir eru Jörgensen Kitchen & Bar á Miðgarði by Center Hotels, Lóa Restaurant á Center Hotels Laugaveg og Héðinn Kitchen & Bar á Granda by Center Hotels. Sem gestur hjá Center Hotels færðu 10% afslátt af á la carte seðlum á veitingastöðunum. Þú getur fengið nánari upplýsingar um alla okkar veitingastaði hér: centerhotels.com/is/matur-drykkir

Er spa á hótelunum?

Já, svo sannarlega. Við erum með þrjár gullfallegar og ótrúlega notalegar heilsulindir á hótelunum okkar. Það eru Miðgarður spa á Miðgarði by Center Hotels, Ísafold spa á Þingholti by Center Hotels og Arnarhvols heilsulindina á Center Hotels Arnarhvoll. Þú getur fengið upplýsingar um heilsulindirnar okkar hér: centerhotels.com/is/spa

ER HÆGT AÐ PANTA NESTI TIL AÐ TAKA MEÐ?

Já, Grab & Go matarpakkinn okkar er tilvalinn til að taka með í ferðalagið. Við útbúum slíkan matarpakka með glöðu geði. Innifalið í matarpakkanum er val um kaffi eða te í íláti sem hægt er að taka með samloka, safi, jógúrt og ávöxtur. Matarpakkinn kostar 2200 kr. á mann.

ÉG ER MEÐ MIKINN FARANGUR – GÆTI ÉG FENGIÐ AÐSTOÐ VIÐ AÐ BERA HANN INN Á HERBERGIÐ MITT?

Við getum aðstoðað þig með að bera farangurinn inn á herbergið fyrir 15 evrur á herbergi. Við getum einnig borið farangurinn inn á herbergið fyrir hópa sem eru með 10 herbergi eða fleiri fyrir 10 evrur á herbergi. Töskuburðurinn sem við bjóðum upp á innifelur töskuburð frá móttöku inn á herbergi á komudag og úr herbergi í móttöku á brottfarardag.

ER HÆGT AÐ FÁ AUKARÚM INN Á HERBERGIÐ MITT?

Hægt er að fá aukarúm sent inn á herbergið svo lengi sem að hægt er að bæta rúmi fyrir inn á herberginu sem þú dvelur í og svo lengi sem við eigum laust aukarúm. Heyrðu endilega í okkur áður en þú kemur og við athugum hvort við komum aukarúmi fyrir hjá þér.

ER HÆGT AÐ FÁ BARNARÚM INN Á HERBERGIÐ MITT?

Hægt er að fá barnarúm inn á herbergið þitt fyrir 10 evrur á nóttu. Bóka þarf barnarúm fyrir komu þína á hótelið.

BJÓÐIÐ ÞIÐ UPP Á AUKAÞJÓNUSTU FYRIR SÉRSTÖK TILEFNI?

Við erum alltaf til í að aðstoða með að gera sérstöku tilefnin enn eftirminnilegri og skemmtilegri. Við bjóðum upp á ýmiss konar pakka sem þú finnur hér.

ER MORGUNVERÐUR INNIFALINN OG HVENÆR ER HANN BORINN FRAM?

Morgunverðarhlaðborð er innifalið á öllum hótelunum okkar, ef bókað er beint í gegnum vefsíðuna okkar, og er borinn fram milli 7:00 og 10:00.

ER HÆGT AÐ FÁ SNEMMBÚINN MORGUNVERÐ?

Hægt er að fá snemmbúinn morgunverð ef þú þarf að fara mjög snemma af stað frá hótelinu. Snemmbúinn morgunverðurinn er borinn fram milli 4:00 og 7:00 og inniheldur croissant, kaffi eða te. Nauðsynlegt er að bóka snemmbúna morgunverðinn með dags fyrirvara.

Bjóðið þið upp á matarpakka með bókuninni?

Við bjóðum upp á tilboð á ýmist tveggja eða þriggja rétta seðlum að hætti kokkanna okkar á veitingastöðum. Tveggja rétta seðillinn er á 6.300 kr. á mann og þriggja rétta seðillinn er á 8.700 kr á mann. Tilboðin gilda með herbergjabókunum og bóka þarf matinn um leið og hótelherbergið er bókað.

ER HÆGT AÐ BÓKA FLUGVALLARAKSTUR Í GEGNUM CENTERHOTELS?

Flugvallarakstur er ekki innifalinn inni í verði hótelherbergisins þíns en við getum að sjálfsögðu aðstoðað þig með að bóka akstur til og/eða frá flugvelli. Nauðsynlegt er að óska eftir slíkum akstri með 24 klst fyrirvara. Möguleiki er einnig fyrir þig að bóka flugvallarakstur í gegnum aðila sem við treystum og vinnum með, sjá hér: https://airportdirect.is/?aid=CenterHotelOnline

ER HÆGT AÐ BÓKA DAGSFERÐ UM ÍSLAND Í GEGNUM CENTER HOTELS?

Við erum boðin og búin til að aðstoða við bókun á ýmiss konar afþreyingu sem snýr að því að kynnast landi og þjóð. Við getum mælt með skemmtilegum ferðum sem gaman væri fyrir þig að fara í og sagt þér frá möguleikum sem þér býðst ef þú ert með eitthvað sérstakt í huga. Bóka þyrfti slíka afþreyingu með dags fyrirvara. Einnig hefur þú möguleika á að skoða og bóka slíka ferð sjálf/ur og þá mælum við með að það sé gert með hjálp aðila sem við treystum og vinnum því með. Sjá hér: centerhotels.com/is/dagsferdir

HVERNIG HLJÓMA AFBÓKUNARSKILMÁLAR CENTER HOTELS?

Þú finnur allar upplýsingar um afbókunarskilmálana okkar á: centerhotels.com/is/afbokunarskilmalar

HVERNIG HLJÓMA SKILMÁLAR CENTER HOTELS?

Þú finnur allar upplýsingar um skilmálana okkar á: centerhotels.com/is/skilmalar

HVERNIG HLJÓMAR PERSÓNUVERNDARSTEFNA CENTER HOTELS?

Þú finnur upplýsingar um persónuverndarstefnu Center Hotels á: centerhotels.com/is/personuvernd

We use cookies to personalize content and to analyze our traffic. Please decide if you are willing to accept cookies from our website.