Sjálfbærnisstefnan

Center Hotels og allar rekstrareiningar þess staðfesta og skuldbinda sig til að fylgja öllum viðeigandi alþjóðlegum, landsbundnum og staðbundnum lögum og reglum, þar með talið á sviðum umhverfis, heilsu, öryggis og vinnumála.

Center Hotels og allar einingar innan hótelkeðjunnar viðurkenna ábyrgð sína gagnvart umhverfinu og starfa í samræmi við alþjóðlega staðla Green Key.

Áhersla er lögð á þrjár meginstoðir: Umhyggja fyrir jörðinni, umhyggja fyrir fólkinu, umhyggja fyrir ábyrgum viðskiptaháttum.

 

Umhyggja fyrir jörðinni

Við berum virðingu fyrir umhverfinu og leggjum áherslu á sjálfbærar og umhverfisvænar aðferðir í daglegum rekstri. Umhverfis- og sjálfbærniaðgerðir okkar eru mikilvægur hluti af starfseminni og við leggjum okkur fram við að skapa jákvæð áhrif fyrir samfélagið í kringum okkur. Við gerum okkur grein fyrir hlutverki okkar í alþjóðlegri ferðaþjónustu og stefnum að langtíma sjálfbærri stjórnun starfsemi okkar og stuðlum þannig að sjálfbærri þróun greinarinnar.

Við leggjum okkur fram um að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar með þátttöku í umhverfis- og náttúruverndarverkefnum.

Við fylgjumst reglulega með árangri í umhverfismálum og setjum okkur skýr markmið til áframhaldandi umbóta.

Við stefnum að því að minnka umhverfisspor okkar með því að spara orku og vatn.

Við lágmörkum úrgang og leggjum áherslu á að draga úr, endurnýta og endurvinna.

Við notum, þegar kostur er, staðbundnar, vistvænar, sanngirnisvottaðar og/eða árstíðabundnar vörur sem ekki valda mengun.

Við fræðum starfsfólk okkar og veitum reglulega þjálfun um umhverfis- og sjálfbærnimál.

Við hvetjum gesti okkar til að taka þátt í umhverfisaðgerðum með því að auka vitund um sjálfbærni og umhverfismál.


Umhyggja fyrir fólkinu 

Hjá Center Hotels leggjum við áherslu á velferð fólks – bæði gesta okkar og starfsfólks. Við mismunum ekki á grundvelli aldurs, kynþáttar, kyns, trúarbragða, fötlunar eða félagslegrar stöðu og umberum ekki misnotkun eða áreitni í neinni mynd.

Við tryggjum að við:

- Stefnum ekki heilsu og öryggi starfsfólks eða samfélags í hættu

- Stuðlum að virkum og heilbrigðum lífsstíl

- Forðumst að hafa neikvæð áhrif á líf heimamanna

- Styðjum jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu í öllum störfum fyrirtækisins


Umhyggja fyrir ábyrgum viðskiptaháttum

Við tökum ábyrgð á að skapa sanngjarna, siðferðilega og gagnsæja viðskiptahætti. Nálgun okkar felur í sér stefnu og ferla sem tengjast siðferði, öryggi, fjölbreytileika og stjórnarháttum.

Center Hotels leggur áherslu á vernd mannréttinda. Við erum vinnustaður með jöfn tækifæri og jöfn laun og fylgjum öllum reglum um sanngjörn vinnubrögð. Við tryggjum að starfsemi okkar brjóti hvorki beint né óbeint gegn mannréttindum í neinu landi.

Við rekum viðskipti ávallt af heilindum og virðingu og stuðlum að:

- Öryggi og sanngjörnum viðskiptum

- Virðingu gagnvart viðskiptavinum og starfsfólki

- Aðgerðum gegn mútum og spillingu

- Fylgni við öll réttindi launafólks


Center Hotels leggur til fjármuni til styrktarmála sem miða að því að:

- Styðja listir, menntun og samfélagsviðburði

- Stuðla að vistvænum lausnum

- Aðstoða þá sem á þurfa að halda

Við hvetjum starfsfólk okkar til sjálfboðaliðastarfa, bæði innan og utan fyrirtækisins, og getum styrkt slík verkefni.


Val á birgjum og samstarfsaðilum

Við höfum áhrif á heiminn ekki aðeins með eigin aðgerðum heldur einnig með þeim kröfum sem við gerum til birgja og samstarfsaðila. Við veljum þá út frá:

- Fylgni við lög

- Siðferði, sanngirni og gagnsæi

- Gæðum

- Umhverfisaðgerðum

- Stuðningi við samfélagið


Líffræðileg fjölbreytni

Center Hotels viðurkennir mikilvægi þess að vernda náttúruna og styðja líffræðilega fjölbreytni. Þrátt fyrir að vera borgarhótel leitast við við að hafa jákvæð áhrif á náttúruna með starfsemi okkar og upplifun gesta.

Markmið okkar:

- Nota plöntur eða kryddjurtir utandyra þar sem hægt er, með áherslu á tegundir sem styðja frjóbera

- Forðast notkun skordýraeiturs og skaðlegra efna á grænum svæðum

- Vinna með birgjum sem leggja áherslu á sjálfbæra uppruna matvæla, þar á meðal sjávarfang og staðbundnar afurðir

- Auka vitund starfsfólks og gesta um íslenska náttúru

- Skoða tækifæri til að styðja staðbundin náttúruverndarverkefni


Kolefnisspor

Center Hotels leggur áherslu á að draga úr umhverfisáhrifum og minnka kolefnisspor sitt.

Markmið okkar:

- Fylgjast með orku- og vatnsnotkun og leita leiða til að minnka hana

- Draga úr úrgangi og auka endurvinnslu

- Forgangsraða staðbundnum birgjum þegar það er mögulegt

- Hvetja gesti til sjálfbærra venja, t.d. endurnotkun handklæða

- Auka vitund starfsfólks um daglegar aðgerðir sem draga úr orkunotkun og úrgangi


Áhætta og neyðarstjórnun

Center Hotels leggur áherslu á að vera vel undirbúið fyrir óvæntar aðstæður og tryggja öryggi gesta og starfsfólks.

Markmið okkar:

- Halda skýrum viðbragðsáætlunum fyrir neyðartilvik

- Veita starfsfólki reglulega þjálfun í öryggis- og neyðarmálum

- Endurskoða áhættumat reglulega

- Tryggja skýr samskipti við gesti og samstarfsaðila við ófyrirséðar aðstæður

- Vinna með yfirvöldum og samstarfsaðilum þegar þörf krefur


Stöðugar umbætur 

Center Hotels lítur á sjálfbærni sem stöðugt ferli. Við munum endurskoða aðgerðir okkar reglulega og bæta við nýjum verkefnum sem styðja líffræðilega fjölbreytni og minnkun kolefnisspors.