Superior apartment
Family apartment 1
Superior apartment 2
One bed home 3
Family apartment

Miðborgaríbúðir

Einskær þægindi eru það sem einkennir Þingholt Hotel Apartments. Íbúðirnar eru staðsettar á Þingholtsstræti, í hliðargötu frá Laugaveg og búa því að því að vera í göngufæri frá öllu því helsta sem miðborgin býður upp á. Íbúðirnar geta hýst allt að 5 gesti og eru vel útbúnar með öllum helstu þægindum sem þarf fyrir góða dvöl. 


Bóka

Hvað gerir okkur sérstök

Frítt WiFi
Sjónvarp
Sófi
Góð staðsetning
Handklæði
Hárþurrka
Hótelíbúðir
tha-1-transformed-1
Íbúðir í miðborginni
Ef þú kýst að dvelja í rúmgóðu gistirými í grennd við allt það helsta sem miðborgin býður upp á gæti Þingholt Hotel Apartments verið góður kostur fyrir þig. Íbúðirnar sem eru bjartar og rúmgóðar henta vel fyrir pör, fjölskyldur eða vini sem vilja eyða góðum tíma saman í Reykjavík. Í boði eru allt frá stúdíó íbúðum til stærri fjölskylduvænna íbúða sem allar bjóða upp á öll þau þægindi sem þarf fyrir góða dvöl.
Meira takk!
360° FERÐALAG
Two bed apartment 3
Innlit inn í íbúðirnar okkar
Vertu velkomin að líta inn til okkar í 360 gráðu ferðalag í eina af íbúðunum okkar og sjáðu hvað þín bíður þegar þú gistir á Þingholt Hotel Apartments from Center Hotels.
Meira takk!
Morgunverðarkörfur
breakfast basket th ap
Vandlega valdar vörur fyrir þig
Ertu seint á ferðinni eða hefur hreinlega ekki tíma til að versla í matinn á meðan þú dvelur hjá okkur? Njóttu þægindanna sem morgunverðarkörfurnar okkar bjóða upp á, fullkomin lausn fyrir þá sem vilja slaka á við komu án þess að þurfa að hugsa um innkaup. Í körfunni finnur þú allt sem þarf til að byrja daginn rétt, frá fersku brauði til ávaxta.
Skoða körfur

Upplýsingar fyrir dvölina þína

Center Hotels valmöguleikar
Þingholt bar
Þingholt by Center Hotels

Þingholt by Center Hotels er boutique hótel staðsett í hjarta borgarinnar. Og talandi um hjarta; Þingholtið okkar er kannski ekki það stærsta í bransanum, en er hótel með risastórt hjarta. Persónulegt, nýmóðins og eins miðsvæðis og hótel verða. Svo er upplagt að trítla yfir á barinn okkar og smakka á því allra besta sem í boði er í vínheiminum.  

Meira, takk!
Ský bar
Center Hotels Arnarhvoll

Nálægðin við höfnina og dásamlegt útsýnið yfir Faxaflóann og fjöllin blá gera Arnarhvol að einstökum dvalarstað. Yfirbragð hótelsins er afar notalegt, allt frá gestamóttöku og til herbergjanna sem eru einstaklega þægileg. Svo er skyldumæting á SKÝ Bar fyrir þá sem kunna að meta góða og svalandi drykki. Og útsýnið – vorum við kannski búin að nefna það?


Meira, takk!
plaza-lounge-2-1
Center Hotels Plaza

Center Hotels Plaza er stórt og vel staðsett hótel í hjarta borgarinnar. Hótelið stendur við Ingólfstorg og gestir hótelsins geta því oft á tíðum notið lifandi stemningar miðborgarinnar sem fram fer á torginu. Staðsetningin er afar þægileg og hentar fyrir hvers kyns heimsóknir þar sem allt sem þú þarft er í göngufæri frá Plaza. Á hótelinu eru notaleg herbergi og góðir fundarsalir útbúnir nýjustu tækjum og tólum fyrir góð fundarhöld. 




Meira, takk!