Our Blog

Saga Center Hotels

Gistiheimilið Flókagötu 2
13/02/2026 12:00 am

Sagan Center Hotels byrjar á Akranesi. Þar hittust eigendur Center Hotels, Kristófer og Svanfríður fyrst, aðeins 10 ára gömul. Nokkrum árum síðar voru þau gift, komin með þrjú börn og stóra drauma um að skapa eitthvað sitt eigið.

Gistiheimilið Flókagötu 1

Árið 1994 tóku þau stökkið og keyptu lítið 14 herbergja gistihús við Flókagötu í Reykjavík. Það var upphafið. Öll fjölskyldan lagði hönd á plóg – börnin aðstoðuðu við morgunverð og þrif, afi var næturvörður og foreldrarnir sáu um reksturinn. Þetta var sannkallaður fjölskyldurekstur þar sem allir byrjuðu á byrjuninni.


Home office

Fjórum árum síðar opnaði fyrsta hótelið, Skjaldbreið við Laugaveg. Þar með var stefnan sett á miðborgina. Í kjölfarið bættust fleiri hótel við – hvert með sína sögu, sínar rætur og sinn karakter. Gamlar byggingar fengu nýtt líf og urðu hluti af vaxandi hótelfjölskyldu í hjarta Reykjavíkur.

Árin hafa fært okkur bæði áskoranir og ótrúleg tækifæri. Við höfum stækkað, þróast og lært – en haldið í kjarna okkar: fjölskylduna, söguna og ástina á borginni.

Í dag samanstendur Center Hotels af níu hótelum og íbúðum í miðborg Reykjavíkur. Börnin og barnabörnin hafa öll lagt sitt af mörkum og starfsmennirnir eru orðnir yfir 300 talsins – öflugur hópur sem vinnur saman á hverjum degi að því að skapa góða upplifun fyrir gesti okkar.

Frá litlu gistihúsi í 14 herbergjum yfir í hótelkeðju í hjarta Reykjavíkur – ferðalagið hefur verið langt, krefjandi og ótrúlega skemmtilegt. Og sagan heldur áfram.

Sjá söguna okkar í heild sinni hér.

Saga Center Hotels

Frá 14 herbergja gistihúsi í níu hótel - öll í hjarta Reykjavíkur. Þetta er saga Center Hotels.

Níu hótel. Níu sögur. Allt í hjarta borgarinnar