Níu hótel. Níu sögur. Allt í hjarta borgarinnar

Center Hotels samanstendur í dag af níu hótelum og íbúðum – öll staðsett í hjarta Reykjavíkur. Hvert þeirra hefur sinn persónuleika, sína sögu og sitt andrúmsloft. En þau eiga eitt sameiginlegt: staðsetninguna, stemninguna og fjölskylduhjartað.

Fyrsta hótelið okkar, Skjaldbreið, opnaði árið 1998 við Laugaveg. Hótelið er með 33 herbergi og notalegan morgunverðarsal, fullkomið fyrir þá sem vilja vera mitt í iðandi miðbæjarlífinu.

Árið 2001 bættist Klöpp við fjölskylduna. Hótelið, sem er með 46 herbergi, er staðsett í fyrrum húsi RÚV og býður upp á hlýlegt andrúmsloft og frábæra staðsetningu í göngufæri við helstu verslanir og veitingastaði borgarinnar.

Þegar við opnuðum Þingholt árið 2006 varð til boutique-hótel með 52 herbergjum í sögulegri byggingu í Þingholtunum. Þar er að finna Ísafold Restaurant & Bar ásamt heilsulind sem gerir dvölina einstaklega notalega.

Árið 2007 opnuðum við Arnarhvoll við höfnina. Hótelið er með 104 herbergi og býður upp á heilsulind og SKY Lounge& Bar á efstu hæðinni með einstöku útsýni yfir borgina og fjöllin í kring.

Plaza opnaði árið 2009 við Aðalstræti, elstu götu Reykjavíkur. Með 255 herbergjum er það okkar stærsta hótel og býður upp á morgunverðarsal og fundaraðstöðu sem hentar vel bæði hópum og viðskiptagestum.

Árið 2015 opnaði Miðgarður við Laugaveg. Hótelið er með 170 herbergi og þar má finna heilsulind, fundaraðstöðu og veitingastaðinn Jörgensen Kitchen & Bar sem hefur fest sig í sessi sem vinsæll samkomustaður.

Laugavegur hótel opnaði árið 2019 með 102 herbergjum og tveimur veitingastöðum; Lóa Restaurant og bar þar sem íslenskar sögur og tilvitnanir prýða veggi og skapa einstaka stemningu.

Árið 2021, á krefjandi tímum, opnuðum við Granda á hinu skapandi hafnarsvæði Reykjavíkur. Hótelið er með 195 herbergi og býður upp á veitingastað, bar, fundarsali og heilsulind í byggingu sem áður hýsti Vélsmiðjuna Héðinn.

Síðast en ekki síst opnuðum við Þingholt Apartments árið 2023. Þar bjóðum við upp á 31 rúmgóða og vel skipulagða íbúð með eldhúsaðstöðu – frábæran valkost fyrir þá sem vilja meira pláss og heimilislegri dvöl í miðborginni.
Frá fyrsta hótelinu árið 1998 og til dagsins í dag höfum við vaxið í yfir 900 herbergi í miðborg Reykjavíkur. Níu ólíkir valkostir – en sama hjartað, sama fjölskyldan og sama ástin á borginni.