Gefðu þér endurnærandi tíma og taktu frá stund fyrir þig á góðum sunnudegi til að mýkja þig, borða góðan mat og slaka vel á í fallegri heilsulind. Self care Sunday viðburðurinn verður haldinn á Miðgarði by Center Hotels þann 16. apríl næstkomandi og munu þær Dagný og Eva Dögg hjá Rvk Ritual sjá um mjúkt jóga og öndun.
Dagskráin
Sunnudagur 16. apríl 2023
11:00 Mjúkt jóga og öndun með Rvk ritual.
12:00 Gómsætur bröns að eigin vali á Jörgensen Kitchen & Bar.
13:00 Afslöppun í Miðgarði spa.
Innifalið í viðburðinum er jóga og öndun með Rvk Ritual, brönsréttur að eigin vali af matseðli Jörgensen Kitchen & Bar og aðgangur í heilsulindina að Miðgarð spa.
Verð: 9.900 kr. á mann.
Upplýsingar og skráning hjá reservations@centerhotels.com eða í síma 595 8582.
Veitingar:
Mikilvægt er að velja hvaða brönsrétt þú kýst að fá við bókun. Í boði eru brönsréttir af matseðli Jörgensen Kitchen & Bar.
- Enskur bröns. Steikt egg, beikon, pylsur, bakaðar baunir, tómatar, sveppir og steikt brauð.
- Amerískur bröns. Eggjahræra, maple beikon, flatar pylsur, rösti kartöflur og pönnukökur með sírópi.
- Vegan bröns. Avókadó brauð, vegan pylsur, tómatar, sveppir og smælki kartöflur.
Smáa letrið:
Full endurgreiðsla er í boði ef afbókað er með 48 klst. fyrirvara. Ef afbókun berst með minni fyrirvara en 48 klst. áður en viðburður á sér stað er endurgreiðsla ekki í boði en má þá nýta greiðslu sem inneign. Ekki er hægt að fá endurgreitt né inneign eftir að viðburður hefst.
Nánari upplýsingar & bókun á námskeið
Hafðu samband Rvk ritual ef þú ert með spurningar tengdar viðburðinum. Við áskiljum okkur rétt á að hætta við viðburðinn ef ekki næg þátttaka næst og munum við þá endurgreiða þeim sem hafa þegar bókað.