Stefán Guðjónsson einn af okkar bestu sommeliers sem tvisvar hefur unnið titilinn Sommelier ársins mun heimsækja okkur á Jörgensen þann 4.desember og mun deila visku sinni um vínheiminn. Á námskeiðinu er bragðað á 5-6 vinsælum vínþrúgum og vínin pöruð með nokkrum gómsætum réttum frá veitingastaðnum okkar, Jörgensen Kitchen & Bar. Við lærum hvernig vínþrúgurnar eru frábrugðnar hver annarri, hvers vegna þær bragðast eins og þær gera, hvaða matur bragðast best með hvaða víni og af hverju. Verð á þátttöku er aðeins 8.900 kr. á mann og þarf að bóka fyrirfram til að tryggja sér sæti við borðið.
Já, takk - Bóka vín- og matarsmökkun fyrir einn
Já, um að gera - Bóka vín- og matarsmökkun fyrir tvo
Heimilisfang Laugavegur 120, 105 Reykjavik, Iceland
Sími 595 8565
Vefsíða https://www.jorgensenkitchen.com/events
Dagsetning 04/12/2020 - 04/12/2020 07:30 pm